Quantcast
Channel: Hveragerði
Viewing all 1772 articles
Browse latest View live

Fyrsta SVEITA- SAMFLOTIÐ í Laugaskarði

$
0
0
sveitasamflot í Laugaskarði

Systrasamlagið og Flothetta í samvinnu við Hveragerðisbæ kynna fyrsta Sveita-Samflotið í Laugaskarði sem haldið verið laugardagskvöldið 12. nóvember frá 20.00 til 21.30.

Jógakennararnir Unnur Einarsdóttir og Sólbjört Guðmundsdóttir, eigendur Ljósheima, munu leiða okkur inn í Samflotið með endurnærandi jógaæfingum og tónheilun.

Til frekari fróðleiks má geta þess að Sundlaugin Laugaskarði er í hópi elstu lauga landsins en vatni var fyrst hleypt í laugina árið 1938. Hún er fræg fyrir fallegt umhverfi og sína náttúrulega eiginleika. Sundlaugin Laugaskarði er 50 metra löng og var um langa hríð stærsta sundlaug landsins. Hún er svokölluð gegnumrennslislaug, hituð upp með jarðgufu, sem tryggir eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins. Laugin verður sérstaklega hituð upp í tilefni Sveita-Samflotssins.

Verð:

  • 8.000 kr með leigu á Flothettu & fótafloti.
  • 6.500 kr. fyrir þá sem eiga Flothettu & fótaflot.

Innifalið:

  • Aðgangur að Laugaskarði
  • Flothetta & fótaflot (fyrir þá sem ekki eiga).
  • Skot á sundlaugabakkanum, nærandi drykkur og súrdeigssamloka til að grípa með sér eftir Samflotið.

Miðasala fer fram í netverslun vef Systrasamlagsins, www.systrasamlagid.is

Allir hjartanlega velkomnir

ATH að fólk fer í Hveragerði á eigin vegum og þar bíða Flothetturnar þeirra sem hafa leigt þær


Sundlaugin þrifin á morgun

$
0
0

Á morgun, miðvikudaginn 2. nóvember, verður laugarkerið tæmt og þrifið. Opið verður í heita potta og gufubaðið.

Samningur um byggingu leikskóla undirritaður

$
0
0
undirskrift verksamnings

Undirritaður hefur verið samningur við JÁVERK um byggingu nýs leikskóla við Þelamörk 62. JÁVERK varð lægst í útboði byggingarinnar og nam tilboð fyrirtækisins 583.734.861,-.
Verklok eru þann 1. október 2018.

Vetraropnun í Hveragarðinum

$
0
0
Bleikur október

Áveðið hefur verið að hafa Hveragarðinn opinn alla daga í vetur og einnig verður garðurinn opinn á kvöldin tvo daga í viku til að koma til móts við mikinn fjölda ferðamanna sem hér hefur viðdvöl allt árið um kring.

Óskað eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2016

$
0
0

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða.

Senn koma jólin

$
0
0
Páll Óskar og Monika með jólatónleika 1. desember

Undirbúningur fyrir jólahátíðina er hafinn. Starfsmenn áhaldahúss eru í óðaönn að setja upp jólaseríur og jólaljósin í bænum eru farin að ljóma.

Samningur við foreldrafélag GíH undirritaður

$
0
0
Foreldraféla GíH

Samningur hefur verið undirritaður milli Foreldrafélags Grunnskólans í Hveragerði og Hveragerðisbæjar.

Samningnum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda í Hveragerðisbæ og Foreldrafélags Grunnskólans í Hveragerði og tryggja öflugt æskulýðs- og forvarnarstarf fyrir börn og unglinga í Hveragerði samkvæmt stefnu bæjaryfirvalda þar um. Jafnframt mun Foreldrafélag Grunnskólans í...

Jólatónleikar með Páli Óskari og Moniku

$
0
0
Páll Óskar og Monika

Þann 1. desember kl. 20:30 verða jólatónleikar með Páli Óskari söngvara og Moniku Abendroth hörpuleikara ásamt Söngsveit Hveragerðis og Söngfélagi Þorlákshafnar í Hveragerðiskirkju.

Forsala verður á aðgöngumiðum í Bókasafninu frá 28. nóvember

Miðaverð er kr. 3500

Athugið að það er frjálst sætaval í Hveragerðiskirkju og eru ekki frátekin sæti.


Deildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga 14. - 22. nóvember.

$
0
0
Deildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga 14. - 22. nóvember.

Þetta er tónleikaröð þar sem fram koma allar hljómsveitir og samspilshópar tónlistarskólans auk smærri hópa og einleikara/einsöngvara. Dagskrá deildartónleikanna er fjölbreytt og metnaðarfull og gefst Sunnlendingum einstakt tækifæri til að fá innsýn í starfsemi tónlistarskólans með því að mæta á tónleikaröðina.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega...

Listamannahúsið Varmahlíð.

$
0
0

Myndlistarmenn – Rithöfundar - Tónlistarmenn

Menningar- íþrótta- og frístundanefnd Hveragerðisbæjar auglýsir eftir umsóknum um dvöl í listamannahúsinu Varmahlíð í Hveragerði. Íbúðarhúsið er búið öllum húsgögnum og eldunartækjum. Gestalistamenn fá endurgjaldslaus afnot af húsinu en kynna sína listgrein í samfélaginu.

Óskað er eftir skriflegum umsóknum, sem sendist til...

Hefur þú búið í Viðlagasjóðshúsi ?

$
0
0
Telescope hús  - mynd Kristinn Pálsson

Hér í Hveragerði byggðust tvö stór hverfi með Viðlagahúsum í kjölfar gossins Í Vestmannaeyjum.
Nú er óskað eftir að þeir sem búið hafa í þeim taki þátt í lítilli könnun.

Árleg hundahreinsun

$
0
0
Árleg hundahreinsun

Hundahreinsun fer fram í Áhaldahúsi bæjarins, Austurmörk 20, fimmtudaginn 24. nóvember n.k. kl. 18:00-20:00.

Aðventu og jólastemning

$
0
0

Handverk og hugvit undir Hamri
Egilsstöðum við Skólamörk í Hveragerði

Sjá auglýsingu undir meðfylgjandi hlekk hér neðar.

Aðalskipulag Hveragerðis – Heildarendurskoðun

$
0
0

Almennur íbúafundur um heildarendurskoðun aðalskipulags Hveragerðis verður haldinn í Grunnskólanum í Hveragerði þriðjudaginn 29. nóvember nk. kl. 20:00.

Íbúafundur


24-11-16_11-44

Góðgerðardagur í Grunnskólanum

$
0
0
Til sölu á góðgerðardegi

Föstudaginn 25. nóvember frá kl. 9.15-11.30 verður opið hús í Grunnskólanum í Hveragerði, á árlegum góðgerðardegi.

Nú í vikunni vinna nemendur hörðum höndum í þemavinnu við að búa til ýmsan varning sem seldur verður á hagstæðu verði á góðgerðardaginn. Hver einasta króna sem kemur í kassann mun renna beint til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

Dagskrá góðgerðardagsins...

Jól í bæ - jólastemning og viðburðir

$
0
0
Viðburðadagatalið kom í hús bæjarbúa í vikunni.

Aðventan er sérlega viðburðarík nú fyrir jólin í Hveragerði og er auðvelt að gera sér glaðan dag. Jólastemning, jólaljós og jólatónlist mun lífga uppá bæjarlífið í svartasta skammdeginu.

Samningur undirritaður um Landsmót 50+

$
0
0
Undirritun

Forsvarsmenn Hveragerðisbæjar, UMFÍ og HSK skrifuðu undir samning um Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið verður í blómabænum Hveragerði næsta sumar. Gert er ráð fyrir miklum fjölda þátttakenda á mótið. Eins og nafnið gefur til kynna er mótið hugsað fyrir þátttakendur á aldrinum 50 ára og eldri.

Listasafn Árnesinga - Fullveldisdagurinn

$
0
0
myndlist-orðlist-tónlist

Á fullveldisdaginn 1. des. kl. 17:00 efna Bókasafnið í Hveragerði og Listasafnið til sameiginlegrar dagskrár í Listasafninu undir yfirheitinu LISTASTUND.

Þá munu rithöfundarnir Auður Ava Ólafsdóttir, Ásdís Thoroddsen, Guðmundur Óskarsson, Guðrún Eva Mínervudóttir og Gyrðir Elíasson lesa úr nýjum bókum sínum, Lay Low flytja fáein lög og Inga Jónsdóttir safnstjóri segja frá nýopnaðri...

Viewing all 1772 articles
Browse latest View live