Quantcast
Channel: Hveragerði
Viewing all 1772 articles
Browse latest View live

Umsóknir Uppbyggingarsjóðs - Kynningarfundur

$
0
0

Mánudaginn 12. september kl. 12 - 13 verður haldinn kynningarfundur á Uppbyggingarsjóði Suðurlands í Fjölheimum, Selfossi.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands eru t.a.m. að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi.

Skráning og nánari upplýsingar eru inná sass.is
og í síma...


Bókasafnsdagurinn

$
0
0
Bókasafnsdagurinn

Velkomin í heimsókn á bókasafnið!

Í upphafi skólaárs...

$
0
0
Skolaupphaf

Ákveðinn spenningur fylgir jafnan upphafi skólaársins þegar allir hittast á ný eftir sumarið og lífið fellur í fastar skorður hjá flestum.

Samhliða því er að mörgu að hyggja. Þar á meðal öryggi barnanna enda verða slys ekki aftur tekin, en þau má fyrirbyggja.

Nauðsynlegt er að ræða hættur við börnin og jafnframt vera til fyrirmyndar í eigin gjörðum.

Nánari upplýsingar...

Ölfusréttir

$
0
0
Ölfusréttir í byggingu 2016

Ölfusréttir verða sunnudaginn 18. september 2016 kl. 16:00

Réttað verður í nýrri Ölfusrétt í mynni Reykjadals sunnudaginn 18. september kl. 16:00 og verður formleg vígsla réttarinnar undir stjórn réttarstjóra.

Á myndinni sem tekin var í sumar má sjá réttina á byggingarstigi en það eru Þorsteinn Hannibalsson í Görpum og starfsmenn hans sem hafa séð um bygginguna.

Leikskóli - Útboðsauglýsing

$
0
0
Leikskóli-Þelamörk 62-Útboð

Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið „Leikskóli Þelamörk 62.”

Íbúð óskast til leigu

$
0
0

Íbúð óskast til leigu

Hveragerðisbær óskar eftir að taka á leigu íbúðarhúsnæði fyrir fjölskyldu flóttamanna sem væntanleg er til Hveragerðis á næstu mánuðum. Æskilegt er að í íbúðinni séu 3-4 svefnherbergi og að húsnæðið sé laust til afnota í nóvember n.k.

Upplýsingar um íbúðir í Hveragerði óskast sendar á netfangið aldis@hveragerdi.is.

Bæjarstjóri

Lausafjáruppboð

$
0
0

Uppboð á óskilahrossi

Einnig birt á nauðungarsölur

Uppboð á eftirfarandi óskilahrossi fer fram þriðjudaginn 27. september n.k. kl. 14:00 að Vorsabæjarvöllum 1 í Hveragerði.

Brúnn, ómarkaður, um 7 vetra gamall hestur

Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir ekki teknar gildar.
Ekki...

19-09-16 10:07


Jarðskjálftar við Húsmúla

$
0
0

Yfirferð jarðvísindafólks Veðurstofu Íslands á gögnum um skjálftahrinuna við Húsmúla síðustu daga gefur til kynna að hún tengist niðurdælingu frá Hellisheiðarvirkjun. Þótt niðurdæling sé stöðug og jöfn þá kunni spennubreytingar sem orðið hafi í jarðskorpunni á svæðinu að hafa breytt áhrifum niðurdælingarinnar.

Götuljós slökkt í kvöld vegna Norðurljósa

$
0
0

Í kvöld, 28. september, verður slökkt á götuljósum frá Frosti og Funa og upp í dal. Spáð er miklum norðurljósum í kvöld.

Leshringur - Prjónakaffi 3. október

$
0
0
Bláklædda konan

Marianne Guckelsberger tóvinnukona kemur í heimsókn og fræðir okkur um íslensku ullina og kynnir fyrir gestum „Bláklæddu konuna frá Ketilstöðum“ Sjá auglýsingu á meðfylgjandi hlekk

Leshringur fimmtudaginn 29. september

$
0
0

Minnum á leshring í dag, fimmtudaginn 29. september kl. 17, en þetta er fyrsti leshringur vetrarins. Eins og undanfarið sér Maria Anna Maríudóttir bókmenntafræðingur um leshringinn. Fjallað verður um bókina Spámennirnir í Botnleysufirði eftir Kim Leine í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar. Án efa verður gaman að ræða um þessa viðamiklu bók. Ef einhvern langar til að bætast í hópinn er upplagt að...

Umfjöllun um „Simplicity Parenting“, í bókasafninu

$
0
0

Miðvikudaginn 2. nóvember ætlar Hulda Sigurlína Þórðardóttir að fjalla um „Simplicity Parenting“, en meira um það þegar nær dregur.

Sýningarspjall með Aldísi í Listasafni Árnesinga.

$
0
0

Sunnudaginn 16. október kl. 15 mun Aldís Arnardóttir önnur tveggja sýningarstjóra sýningarinnar Tímalög - Karl Kvaran og Erla Þórarinsdóttir ganga með gestum um sýninguna, segja frá og svara spurningum þeirra.

Sjá auglýsingu undir hlekknum hér fyrir neðan.

Gervigrasinu skipt út fyrir nýtt og betra

$
0
0
Unnið að lagningu gervigrassins

Undanfarið hafa starfsmenn fyrirtækisins Altis ehf unnið að því að skipta út gervigrasinu á sparkvellinum við grunnskólann en eldra gras var bæði orðið lélegt en einnig var það með svart gúmmí í fyllingu sem æskilegt var talið að losna við. Bæjarstjórn tók ákvörðun um að bregðast strax við þeirri umræðu sem spannst um svarta gúmmíkurlið og setti endurnýjun gervigrassins á fjárhagsáætlun fyrir...


Tónleikar með Diddú og Berþóri Páls í kirkjunni

$
0
0
Söngvararnir Diddú og Berþór og Kjartan píanóleikari.

Dagskrá sem átti að vera á Blómstrandi dögum

Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson syngja á tónleikum í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 23.október kl. 16. Píanóleikari er Kjartan Valdemarsson.

Á efnisskránni kennir ýmissa grasa; ljúflingslög eftir Inga T. Lárusson, Sigfús Halldórsson, Jónas og Jón Múla, Oddgeir Kristjánsson o.fl., en einnig létt Vínarlög og önnur þekkt erlend sönglög. Miðasala á Tix.is

Lausar stöður við Grunnskólann

$
0
0
Lausar stöður við Grunnskólann

Auglýst er eftir starfskröftum í eftirfarandi störf við Skólasel – Frístundaskóla.

43,7% stöðu, við leik og störf með hressum krökkum og frísku starfsfólki, vinnutíminn er 12:30-16:00.

62,5% stöðu, við hopp og hí með hressum krökkum og fjörugu starfsfólki, vinnutíminn er 12:00-17:00.

22% stöðu við ræstingar Skólasels við Fljótsmörk og Þórsmörk eftir 17:00 á...

Kjörfundur í Hveragerði

$
0
0
Kjörfundur í Hveragerði

Kjörfundur í Hveragerði

Kjörfundur vegna alþingiskosninga, laugardaginn 29. október 2016, hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag í Grunnskólanum í Hveragerði.

Gengið er inn um aðalinngang vestanmegin.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

$
0
0
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga, sem fram eiga að fara laugardaginn 29. október 2016, fer fram á bæjarskrifstofum Hveragerðisbæjar frá og með 10. október.

Kjörskrá fyrir Hveragerði vegna kosninganna, liggur frammi á skrifstofu Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2 frá og með 19. október.

Opnunartími skrifstofu er milli kl. 10:00-15:00.

29. september...

Laus staða garðyrkjufræðings

$
0
0
Laus staða garðyrkjufræðings

Umhverfisdeild Hveragerðisbæjar

Vegna fæðingarorlofs vantar garðyrkjufræðing hjá Umhverfisdeild Hveragerðisbæjar frá 1. janúar 2017.

Nánari upplýsingar veitir Ari Eggertsson umhverfisfulltrúi í síma 660 3908 eða á netfangið:

Viewing all 1772 articles
Browse latest View live