Vínbúðin í Sunnumörkina
Skoðanakönnun um sameiningu
Eftirfarandi breytingatillaga frá fulltrúum meirihlutans var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar þann 13. mars 2014.
Bæjarstjórn samþykkir að samhliða sveitarstjórnarkosningum fari fram skoðanakönnun meðal bæjarbúa þar sem spurt verði um afstöðu þeirra til sameiningar við önnur sveitarfélög.
Spurt verði um það hvort að viðkomandi vilji sameinast öðru sveitarfélagi og ef...
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Hólmabrún og Dalsbrún.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Hólmabrún og Dalsbrún, Hveragerði.
Nýtt Skólasel opnar!

Það er komið að því .......
„Leyndardómar steinanna“

„Leyndardómar steinanna“
Mjallhvít og dvergarnir 7

Leikfélag Hveragerðis er um þessar mundir að sýna hið klassíska leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö í skemmtilegri uppfærslu Hafsteins Þórs Auðunssonar.
Sjá má sýningartíma með því að smella á meðfylgjandi mynd.
Uppspretta hugmynda – í Listasafni Árnesinga

Sunnudaginn 6. apríl kl. 13:00. Uppspretta hugmynda – Dagskrá með Listasafni Árnesinga og Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Spjall, stutt gönguferð og erindi. Dagskráin hefst á Bókasafninu kl. 13. Þar verður m.a. spjallað um bækur þar sem Hveragerði kemur við sögu. Síðan verður gengið yfir í Listasafnið þar sem dagskráin heldur áfram og Guðrún Eva fjallar um uppsprettu hugmynda út frá umhverfinu og...
Leyndardómar Suðurlands - Uppáhalds barnabækurnar

Miðvikudaginn 2. apríl kl. 17 og 17:30:
Uppáhalds barnabækurnar – Lesendur úr ýmsum áttum, m.a. þátttakendur í Stóru upplestrarkeppninni, lesa úr uppáhalds barnabókunum sínum.
Verðlaunagetraun fyrir börn og fullorðna í gangi alla dagana. Upplögð dægradvöl fyrir fjölskylduna. Dregið úr réttum lausnum 6. apríl kl. 15.
Nýr sorphirðusamningur undirritaður
Nýr samningur um sorphirðu var undirritaður milli Hveragerðisbæjar og Gámaþjónustunnar hf nýverið. Er þessi samningur afrakstur útboðst sem ráðist var í kringum áramótin en Gámaþjónustan átti þar lægsta tilboð.
Um mánaðamótin mars/apríl mun Gámaþjónustan taka við sorphirðu í bæjarfélaginu og þar með lýkur áratugalangri og farsælli sorphirðuþjónustu Sorphirðu Suðurlands og síðar...
Sumarstörf hjá Hveragerðisbæ
Hveragerðisbær óskar eftir sumarstarfsmönnum í eftirtalin störf:
Vinnuskóli Hveragerðisbæjar
Flokksstjórar óskast í umsjónarstörf á vegum Hveragerðisbæjar t.d í almenna umhirðu opinna svæða, í vinnuskóla, á gæsluvöll og í skólagarða. Æskilegur aldur 18 ára og eldri. Einnig vantar starfsmenn í ýmis störf t.d í almenna umhirðu opinna svæða og fleiri umhverfisverkefni....
Allt um "Leyndardóma Suðurlands"

Hér neðar eru bæklingar, hefðbundinn og í tímaröð, með ítarlegri dagskrá "Leyndardóma Suðurlands" dagana 28. mars - 6. apríl 2014.
Leyndardómar Suðurlands - Opnun hátíðar

Um 200 leyndardómsviðburðir á Leyndardómum Suðurlands
Föstudaginn 28. mars kl. 14:00 hefst kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands þegar ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga mæta við Litlu Kaffistofuna og klippa á borða og opna þar með 10 daga hátíð á Suðurlandi....
Samverugleði og sýningarspjall

Verið velkomin í samverugleði og sýningarspjall á sunnudaginn kl. 15 Með góðum kveðjum,
Listasafn Árnesinga Austurmörk 21, 810 Hveragerði sími: 483 1727 www.listasafnarnesinga.is
Fjölskyldudagar um helgina

Við tökum þátt í Leyndardómum Suðurlands 28. mars til 6. apríl. Allir velkomnir í Hveragerði. Frítt í strætó þessa daga frá höfuðborgarsvæðinu. Þjónustuaðilar með flott tilboð.
Fjölskylduhátíð í Hveragerði helgina 29. - 30. apríl.
Dagskrá er eftirfarandi þessa daga:
Elísabet Jökuls í Bókasafninu
Ástin er ígulker
Laugardaginn 29. mars kl. 13 les Elísabet Jökulsdóttir úr tveimur óútkomnum verkum á Bókasafninu í Hveragerði. Annars vegar ljóðabókinni Ástin er ígulker þar sem hún fjallar um skaðlegt samband, hins vegar skáldsögunni Drasl þar sem hún fjallar um sama efni frá kómískara sjónarhorni. Elísabet býður upp á spjall að lestri loknum.
Elísabet er vel þekkt sem...
Gámastöðin er lokuð í dag
Gámastöðin er lokuð í dag mánudaginn 31. mars. Opnið verður á morgun eins og venjulega.
Prjónakaffi á bókasafninu
Mánudaginn 7. apríl er prjónakaffi kl. 20-22. Gaman ef einhver á skemmtilegt heklað eða prjónað páskaskraut til að fá að skoða það.
Ljósleiðari - kynningarfundur

Hveragerðisbær í samvinnu við Gagnaveitu Reykjavíkur boðar til kynningarfundar um lagningu ljósleiðara í Hveragerði.
Framkvæmdir munu hefjast á vormánuðum og í sumar verður þjónustan svo til öllum aðgengileg.
Hittumst í Grunnskólanum í Hveragerði þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 18.
Fundurinn stendur í 1 klukkustund.
Kynnið ykkur þá möguleika sem ljósleiðarinn...
Gatna- og stígagerð sumarsins er hafin
Nýlega var skrifað undir verksamning við jarðvinnuverktakann Arnon ehf. frá Hveragerði, um gatna og göngustígagerð.
Verktakinn endurnýjar lagnir og leggur bundið slitlag á akbrautir og gangstéttar í Bröttuhlíð og Þverhlíð. Einnig endurnýjar hann göngustíg og girðingar um Drullusundið, sem er á milli Hveramerkur og Bláskóga og leggur nýja göngustíga á opnu svæði við Valsheiði, Lyngheiði...
Leikfélagið í Hvergerði - Mjallhvít og dvergarnir sjö

Leiksýningar dagana 12. - 21. apríl. Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá sýningartíma.