
Ragnar Ágúst Nathanaelsson er íþróttamaður Hamars 2013 en kjörið var kunngjört á aðalfundi félagsins sem haldinn var sunnudaginn 23.febrúar. Á aðalfundinum voru einnig heiðraðir þeir íþróttamenn deilda sem þóttu skara fram úr á árinu 2013.
Þeir sem voru heiðraðir sem íþróttamenn sinnar deildar eru:
- Hrefna Ósk Jónsdóttir fyrir badminton
- Ásdís Linda Sverrisdóttir fyrir blak
- Kolbrún Marín Wolfram fyrir fimleika
- Björn Metúsalem Aðalsteinsson fyrir knattspyrnu
- Ragnar Ágúst Nathanaelsson fyrir körfuknattleik
- Dagbjartur Kristjánsson fyrir sund
- Jón Gísli Guðlaugsson fyrir skokkhópinn
Aðalfundarstörf gengu vel fyrir sig og reikningar félagsins samþykktir samhljóða.
Í stjórn voru kjörin Hjalti Helgason, Valdimar Hafsteinsson, Erla Pálmadóttir, Friðrik Sigurbjörnsson og Álfhildur Þorsteinsdóttir sem kom ný inn í stað Halls Hróarsonar. Hallur gaf ekki kost á sér áfram en er þakkað góð störf fyrir félagið.
Óskar stjórnin Ragnari og þeim íþróttamönnum sem heiðraðir voru til hamingju með viðurkenninguna og hvetur alla íþróttamenn félagsins til góðra afreka á íþrótta á árinu 2014.
Frétt frá http://hamarsport.is/