Undanfarnar vikur hefur orðið nokkur aukning á jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaganum og nágrenni hans. Meðal annars varð skjálfti af stærð 4 í lok maí sem átti upptök við Kleifarvatn og fannst vel víða á höfuðborgarsvæðinu.
Í framhaldi slíks atburðar getur spennuástand í jarðskorpunni orðið óstöðugra á stærra svæði í kring.
Greining á smáskjálftum bendir til þess að slíkur...