
Bæjarráð hefur samþykkt að taka þátt í verkefni Skógræktarfélags Íslands en þar eru sveitarfélög hvött til að standa sameiginlega með skógræktarfélögum landsins að gróðursetningu trjáplantna laugardaginn 27. júní nk. til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá því að hún var kjörin í embætti forseta Íslands, fyrst kvenna í heiminum sem þjóðkjörinn forseti.
Hefur verið ákveðið að trén myndi grunn að sérstökum trjálundi til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur.