
Elst Hvergerðinga er Regína Guðmundsdóttir en hún er verður 99 ára á árinu. Árgangur 1989 er langfjölmennastur í bæjarfélaginu en þau eru nú 48 búandi hér í Hveragerði. Árið 2016 fæddust 28 börn og nú eru íbúar í Hveragerði 2.483.
Elst Hvergerðinga er Regína Guðmundsdóttir en hún er verður 99 ára á árinu. Árgangur 1989 er langfjölmennastur í bæjarfélaginu en þau eru nú 48 búandi hér í Hveragerði. Árið 2016 fæddust 28 börn og nú eru íbúar í Hveragerði 2.483.
Orkusalan hefur fært Hveragerðisbæ hleðslustöð fyrir rafbíla að gjöf en bæjarstjóri hefur þegar tekið við gjöfinni fyrir hönd sveitarfélagsins.
Orkusalan hefur ákveðið að gefa öllum sveitarfélögum landsins hleðslustöðvar sem þessa. Með átakinu vill fyrirtækið auðvelda rafbílaeigendum að komast leiðar sinnar hringinn í kringum landið en Ísland er í lykilstöðu til að leiða...
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Dalsbrúnar, Hjallabrúnar og Hólmabrúnar í Hveragerði.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti þann 8. desember sl. að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalsbrúnar, Hjallabrúnar og Hólmabrúnar, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið afmarkast til suðurs af Sunnumörk, til vesturs af Heiðarbrúnarhverfi, til norðurs...
Söngur og gleði, jólasveinar, Grýla og Leppalúði kveðja jólin og halda til fjalla. Söngsveitin, Leikfélagið og Söngfuglarnir hennar Möggu koma fram.
verður í Skyrgerðinni föstudaginn 6. janúar kl. 17:00 – 17:40. Söngur og gleði með álfadrottningu og álfakóngi. Grýla og Leppalúði mæta ásamt sonum sínum jólasveinunum. Einnig munu púkar verða á ferðinni.
Nú standa yfir framkvæmdir við Mjólkurbúið (Breiðamörk 26) sem miða m.a. að því að gera íbúð á 2. hæð hússins íbúðarhæfa. Mjólkurbúið er eitt elsta hús bæjarins, byggt árið 1929 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Stofnun Mjólkurbús Ölfusinga og bygging hússins markaði upphaf þéttbýlis í Hveragerði. Nú er búið er að fjarlægja spónaplötuklæðningu og plasteinangrun...
Fundur nr. 483 í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar verður haldinn fimmtudaginn 12. janúar kl. 17 á bæjarskrifstofunni.
Dagskrá fundarins má finna með því að smella á skjalið hér fyrir neðan.
Ennfremur er minnt á beina útsendingu frá fundinum en tengill á hana er á forsíðu heimasíðunnar.
Að skapa myndlist er þjálfun sem allir geta þróað með sér og samtímis fæst aukin ánægja og skilningur á myndlist almennt. Nú á vörönn verður boðið upp á kvöldnámskeið í teiknun 1- 2, teiknun 3, anatómíu, portrett og módelteikningu. Helgarnámskeið í olíumálun, vatnslitamálun, akrílmálun og blandaðri tækni, ljósmyndun og mótun. Barnanámskeið fyrir krakka 8-10 ára og 11-12 ára og námskeið í...
Auka hundahreinsun fer fram í Áhaldahúsi bæjarins, Austurmörk 20, laugardaginn 14.janúar n.k. kl. 14:00-16:00.
Þeir sem létu hreinsa hundana sína í nóvember síðastliðinn þurfa ekki að mæta aftur fyrr en næsta haust!
Eigendum óskráðra hunda gefst kostur á að skrá og greiða hundaleyfisgjald á staðnum. ATH. enginn posi!
Hundaleyfisgjald er með...
Atriði frá félagsmiðstöðinni Skjálftaskjóli var eitt af þremur sem komst áfram í úrslit söngkeppni USSS sem haldin var á Hellu í kvöld. Það voru þær Gígja Marín Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Hrafnhildur Hallgrímsdóttir sem fluttu lagið „Your Song“ eftir Elton John.
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í endurnýjun gluggahliðar 2. hæðar sundlaugarhússins í Laugaskarði.
Verkið felur í sér niðurrif og förgun á 51 fermetra gluggahlið úr timbri og smíði og uppsetningu á nýrri gluggahlið með opnanlegum hurðum og gluggafögum, tvöföldu einangrunargleri í efri hluta og tvöföldu lituðu gleri í neðri hluta.
Upphaf verks: Við...
Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni „ The full monty.“ Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni.
Geta má þess að Leikfélag Hveragerðis er 70 ára á þessu ári og hafa verið settar upp sýningar öll árin, ein eða fleiri. Meðal annara fléttast inn í þetta...
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti þann 12. janúar 2017 óverulega breytingu á deiliskipulagi við Smyrlaheiði 45-56 í Hveragerði. Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit á lóðinni Smyrlaheiði 56. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
Hveragerði 26. janúar 2017 Guðmundur F....
Hingað til Hveragerðis er komin sjö manna fjölskylda frá Sýrlandi sem undanfarin ár hefur dvalið sem flóttamenn í Líbanon. Var tekið á móti fjölskyldunni með viðhöfn á Leifsstöð af ráðherra félagsmála og jafnréttis.
Anna Erla Valdimarsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Leikskólans Undralands í veikindafjarveru Sesselju Ólafsdóttur, leikskólastjóra. Tók hún við starfinu þann 1. febrúar s.l.
Anna Erla sem er leikskólakennari að mennt hefur starfað á Undralandi um árabil. Fyrst sem leiðbeinandi en að lokinni útskrift árið 1998 hefur hún starfað þar sem deildarstjóri og nú síðast sem...
Landsmót UMFÍ 50+ er haldið 23. - 25. júní 2017 í Hveragerði.
Þetta verður í sjöunda sinn sem mótið er haldið. Mótið er skemmtileg viðbót í landsmótsflóru UMFÍ en eins og nafnið bendir til þá er mótið fyrir þá sem eru 50 ára og eldri.
Eins og á öðrum landsmótum þá er það íþróttakeppnin sem skipar stærstan sess á mótinu en síðan eru það fjölmargir viðburðir sem skreyta...
Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar
Við bjóðum gesti velkomna á Bæjarhátíðina, Blómstrandi daga, í Hveragerði 17. – 20. ágúst 2017.
Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða.
Áhersla er lögð á uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum. Áhugaverðar listsýningar og fjölbreyttir tónlistarviðburðir eru í bænum...
Með samningnum fær íþróttafélagið 22,6 m. kr. á tímabilinu frá Hveragerðisbæ. Auk þess fær íþróttafélagið íþróttamannvirki bæjarins til endurgjaldslausra afnota og er sá styrkur metinn á 83,5 mkr.
Starfsfólk bókasafnsins minnir á prjónakaffi á mánudagskvöldið eins og venjulega, kl. 20-22.
Eftirfarandi skilaboð bárust í dag: Hlakka til að sjá sem flestar og sem flest nýtt og spennandi á prjónunum. Þið megið gjarna láta vita af þessu í kringum ykkur.
Bestu kveðjur,
Hlíf og starfsmenn
Matráður óskast tímabundið vegna veikinda í mötuneyti leikskólans Óskalands, Finnmörk 1, Hveragerði!
Upplýsingar veitir leikskólastjóri Gunnvör Kolbeinsdóttir í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is