Skógræktarfélag Hveragerðis hlaut umhverfisverðlaun Hveragerðis árið 2015 við hátíðlega athöfn á Garðyrkjuskólanum að Reykjum í dag, sumardaginn fyrsta. Það var forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem afhenti Eyþóri H. Ólafssyni, formanni Skógræktarfélagsins, og Laufeyju S. Valdimarsdóttur, stjórnarmanni til 20 ára, viðurkenninguna.
↧