Starf laust til umsóknar við íþróttamannvirki í Hveragerði:
Starfið felst aðallega í baðgæslu í kvennaklefum og umsjón í íþróttahúsi ásamt ræstingu frá kl. 8 - 16, nokkrar vaktir í mánuði. Viðkomandi þarf að hafa mikla ábyrgðartilfinningu, vera góður í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af því að starfa með börnum.
Allar nánari upplýsingar gefur menningar- og frístundafulltrúi í síma 483 4000
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu bæjarins.
Menningar- og frístundafulltrúi