Mistök áttu sér stað í Sunnlensku fréttablöðunum um tónleika Hljómsveitarinnar Ylju.
Tónleikar hljómsveitarinnar Ylju eru í kvöld, föstudag, kl. 21.
Miðasala við innganginn og á midi.is kr. 1500
Misritun í dagskrárbæklingi:
Myndlistarfélag Árnessýslu
verður með sölusýningu í leikhúsinu við hliðina á Eden á verkum nokkurra félaga. Opið er á föstudag frá kl. 15 - 18, laugardag frá kl. 13 - 18 og á sunnudag frá kl. 13 - 16.
Grænmetismarkaðurinn
við leikhúsið er opinn til kl. 18, alla helgina.
Á laugardag kl. 17
sýnir landsliðshópur í fimleikum í Lystigarðinum / Fossflöt.
Magni Ásgeirsson
rokkar með Pétri Erni í Eden grunninum laugardag kl. 15:30.