Laust er til umsóknar starf vélamanns/verkamanns við áhaldahús Hveragerðisbæjar.
Starfið er fullt starf og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf hið fyrsta. Leitað er eftir áhugasömum, jákvæðum og úrræðagóðum starfsmanni sem getur unnið sjálfstætt og hefur til að bera ríka þjónustulund og mikla færni í mannlegum samskiptum. Krafist er að viðkomandi hafi full vinnuvélaréttindi en einnig væri æskilegt að umsækjandi hafi meiraprófsréttindi.
Nánari upplýsingar veitir Ari Eggertsson umhverfisfulltrúi http://ari@hveragerdi.is/
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Hveragerðisbæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á bæjarskrifstofunni, Sunnumörk 2. Umsóknum, sem skulu vera skriflegar, ber að skila á skrifstofu Hveragerðisbæjar fyrir 11. mars næstkomandi. Starfsferilsskrá ásamt öðrum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja starfsumsókn.
Hveragerði 24. febrúar 2014
Ari Eggertsson, umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar.