Eins og venjan er þá verða ljósin tendruð á bæjarjólatrénu sem staðsett er í Smágörðunum sunnudaginn 1. desember, kl. 17, eða fyrsta sunnudag í aðventu.
Jólasveinarnir koma í heimsókn úr Reykjafjalli og taka lagið með börnunum af sinni alkunnu snilld.
Heitt kakó í boði Skátafélagsins Stróks.