
Nýtt námskeið tengt heilsurækt eldri borgara, 60 ára og eldri hófst nú í vikunni. 56 manns eru nú þegar skráðir og er enn hægt að bætast í hópinn.
Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur og er kennt á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 11:00 upp í Hamarshöll. Námskeiðið er í boði Hveragerðisbæjar þátttakendum að kostnaðarlausu og unnið í samstarfi við félag eldri borgara....