Kjörfundur vegna alþingiskosninga laugardaginn 27. apríl 2013 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag. Kjörfundurinn verður í Grunnskólanum í Hveragerði, gengið er inn um aðalinngang við íþróttahúsið.
Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:
Kjósandi skal hafa persónuskilríki meðferðis og allur áróður á og við kjörstað er óheimill.
Hveragerði 22. apríl 2013
Kjörstjórnin í Hveragerðisbæ.