
Dagana 22. maí til 4. júní verður sameiginlegt hreinsunarátak sveitarfélaga á Suðurlandi þar sem markmiðið er að bæta ásýnd umhverfisins í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli landsins. Einkunnarorð átaksins eru „Suðurland í sparifötin“ og ætlum við íbúar Hveragerðis að taka fullan þátt í því.
Ókeypis verður fyrir einstaklinga að losa rusl á gámasvæðinu í Bláskógum 14 þessa daga og...