
Ljósmyndasýningin STEYPA er árlegur viðburður á Íslandi og er sýningin nú haldin í fimmta sinn. Áður hefur STEYPA verið sett þrisvar upp í Djúpavík á Ströndum, en á síðasta ári fann STEYPA sér stað í Ólafsvík. Sýningarnar hafa allar vakið verðskuldaða athygli og hafa allt að 10 ljósmyndarar sýnt myndir sínar ár hvert. Þátttakendur STEYPU 2017 eru 10 ljósmyndarar, bæði íslenskir og erlendir,...